SKILMÁLAR
Almennar pantanir.
Allar pantanir á smávöru fara fram í gegnum vefverslun okkar en allar vörur sem þarf að sérpanta fara fram í gegnum tölvupóst hico(hjá)hico.is eða í skilaboðum á samfélagsmiðlum okkar. Ef vara er til á lager er pöntun afgreidd innan eins til tveggja virkra daga. Pöntun telst móttekin þegar greiðsla hefur borist.
Sérpantanir.
Sérpantanir hjá HICO geta tekið 6-10 vikur. Farið er fram á 50% innborgun þegar varan er pöntuð og eftirstöðvar eru greiddar við afhendingu. Sérpöntunum er ekki hægt að skila. Tekið er við öllum sérpöntunum á hico(hjá)hico.is
Stálsmíði
Sé um sérverkefni að ræða sem unnið er eftir tilboði, áskilur HICO sér rétt til að hækka verð ef umfang verksins er meira en upphaflega var gert ráð fyrir eða að verðhækkanir hafi verið hjá birgja, og er þá viðskiptavinur látinn vita. Verði töf á framleiðslu vegna efnisskorts eða annarra óviðráðanlegra atvika er viðskiptavinur upplýstur af HICO eins fljótt og auðið er. Flutningskostnaður á verki er ekki innifalinn í tilboði, nema um það sé samið sérstaklega
Sendingarkostnaður og afhending.
Smávörur eru keyrðar heim á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu innan tveggja virkra daga (sé vara til á lager). Sendingar á landsbyggðina eru sendar með Íslandspósti og gilda þá afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu á vörum.
Ef um er að ræða húsgögn eða stærri hluti greiðir viðtakandi sendingarkostnað við heimkeyrslu. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá HICO til viðtakanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Vöruskil
Skilafrestur eru 14 dagar frá kaupum og fæst vöru einungis skilað sé hún óskemmd, ónotuð og í upprunalegum umbúðum þar sem við á. Hægt er að velja um endurgreiðslu eða vöruskipti. Sérpöntunum fæst ekki skilað.
Verð.
24% virðisaukaskattur er innifalinn í öllum verðum. Verð eru gefin upp með fyrirvara um mistök eða innsláttarvillur. Athugið að verð geta breyst án fyrirvara.
Greiðsla
Hægt er að velja um millifærslu eða fá reikning sendan í heimabanka. Sé millifærsla valin fær viðskiptavinur sendar reikningsupplýsingar frá HICO. Staðfesta skal millifærslu með því að senda kvittun á hico(hjá)hico.is
Trúnaður.
Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki undir neinum kringumstæðum upplýsingar til þriðja aðila.
UPPLÝSINGAR
hico (hjá) hico.is
Sími: 771-5666
Kt. 520221-1580
Vsk nr. 140291
